Norðanáttin
Fyrir þau sem ganga á móti veðrinu og bera sigur úr býtum.
6.900.000 kr.
Austurland · stofnár óskráð
„Frá þeim tíma er aðrir gáfust upp.“
Yfirlýsing
Hlýja er ekki þægindi.
Hún er staða.
Þar sem norðanáttin mætir firðinum verður feldurinn til. Almenningur kaupir sér yfirhöfn. Við afhendum arfleifð, þeim einum sem hafa unnið til hennar. Skjólið sem við bjóðum ver ekki gegn veðri. Það vekur eftirtekt.
Safnið
Fyrir þau sem ganga á móti veðrinu og bera sigur úr býtum.
6.900.000 kr.
Borin einu sinni. Hennar minnst að eilífu.
8.400.000 kr.
Frönsk fágun. Austfirsk festa.
7.200.000 kr.
Hlýja með iðnaðarsögu.
5.500.000 kr.
Yfir heiðina. Ofar öllu.
9.800.000 kr.
Fyrir kvöld sem enda vel.
7.700.000 kr.
Hér lýkur safninu.
Öll verð eru endanleg.
Pelsasalinn
Pelsasali
Heimir Arnfinnsson hefur helgað líf sitt einni spurningu: Hver á skilið að klæðast pels? Í áratugi hefur hann þjónað Austfirðingum og, þegar tilefni gefst, nágrenninu. Hann velur viðskiptavini sína af sömu kostgæfni og hann velur feldinn.
Hann svarar ekki tölvupósti. Hann finnur þig.
Umsagnir
Ég spurði um verðið. Þá bað hann mig að fara.
G.Þ. · Fáskrúðsfirði
Fólk heilsar mér öðruvísi í Nettó núna.
S.K. · Reyðarfirði
Þetta er ekki flík. Þetta er samfélagsstaða.
J.B. · Neskaupstað
Erindi
Móttaka erindis felur ekki í sér loforð um afgreiðslu. Heimir metur hvert erindi sjálfstætt.
Erindi móttekið.
Heimir svarar aðeins útvöldum.